Mazda setur nýtt met í öryggisprófun. Aldrei hefur jafn há einkunn verið gefin!
Mazda CX-30 hlaut hæstu einkunn, sem gefin hefur verið, í öryggisprófun Euro NCAP.
Glænýr Mazda CX-30 setti nýtt met í öryggisprófun Euro NCAP, fékk 99 stig. „Það eru fáir öruggari staðir til að vera á en í Mazda
CX-30“ segir í niðurstöðu prófdómara.
Umfang öryggiskerfa og virkni þeirra skipta ótrúlega miklu máli þegar bílar eru öryggisprófaðir og hvort bíll geti náð 5 stjörnum. Mazda CX-30 er ótrúlega vel búinn fjölda virkra öryggiskerfa til að koma í veg fyrir árekstur við aðra vegfarendur - hvort sem það eru bílar í umferðinni eða gangandi eða hjólandi vegfarendur. Framúrskarandi öryggistækni Mazda, i-ACTIVSENCE verndar þig og þína. Kerfið er útbúið átta skynjurum sem aðstoða ökumann við að greina aðkallandi hættur í umhverfinu og láta ökumann vita um leið. Daglegur akstur í Mazda CX-30 verður enn auðveldari með framrúðuskjánum og bakkmyndavélinni. Einnig má nefna Smart City Brake stuðning sem er stöðugt að fylgjast með hraða bílsins og fjarlægð í næstu hindrun og bregst við óvæntum hindrunum.
Það er mikil öryggistilfinning fyrir ökumann og farþega að keyra í bíl með fyrirmyndar öryggisstig. Michiel van Ratingen, framkvæmdastjóri Euro NCAP, segir: „Til hamingju Mazda með enn eina framúrskarandi niðurstöðu. Við eigum eftir að prófa nokkra bíla árið 2019 en við erum ekki líkleg til að sjá betri niðurstöðu. “
Niðurstaðan þýðir að CX-30 slær fyrri stigamet, m.a. Alfa Romeo Giulia, Mazda3, Volvo XC60 og Volvo V40, sem hlutu 98 stig.
Mazda var stofnað árið 1920 í Japan og er fjölþjóðlegt fyrirtæki undir áhrifum ólíkra menningarheima en með mikla virðingu fyrir japanskri arfleifð sinni. Við hjá Mazda trúum á að ögra sjálfum okkur til að gera hlutina betri. Sá hugsunarháttur hefur leitt okkur til þróunar á nýjustu tæknilausnum og bílum sem eru fallegir, hvetjandi og ekki síst skemmtilegir í akstri.
Matthew Avery, forstöðumaður tryggingarrannsókna hjá Thatcham Research, sem annast öryggispróf hjá Euro NCAP, kallaði niðurstöðuna „svo sannarlega áhrifamikil“.