Neyðarþjónusta verkstæðis og varahlutaverslunar
Neyðarþjónusta gegn gjaldi
- Laugardaga kl. 10 -17
- Sunnudaga kl. 10 - 17
- Á virkum dögum kl. 18 - 22
- Almennir frídagar (rauðir dagar) kl. 10 - 17
Neyðarþjónusta verkstæðis og varahlutaverslunar kostar kr. 25.000 fyrir hvert útkall og er útkallskostnaður til viðbótar við kostnað sem hugsanlega fellur til vegna viðgerðar og varahluta. Neyðarþjónusta er hugsuð fyrir viðskiptavini sem lenda óvænt í því að bíllinn bilar en þurfa nauðsynlega á viðgerð að halda utan opnunartíma.
Vinsamlegast athugið að tæknileg ráðgjöf og tækniupplýsingar fyrir bílaviðgerðir er ekki veitt í neyðarsíma.
Neyðarsími fyrir Mazda er 894-1515
Neyðarþjónusta utan Reykjavíkur er í boði hjá þjónustuaðilum Brimborgar um land allt.