SKILMÁLAR
MAZDA.IS
SKILMÁLAR VEFSINS
Notkunarskilmálar fyrir vefsvæði Mazda á Íslandi: www.mazda.is
Notkun á vefsvæði Mazda á Íslandi, www.mazda.is, er háð eftirfarandi notkunarskilmálum. Vinsamlega kynnið ykkur þá vandlega áður en þið notið vefsvæðið. Með notkun á vefsvæðinu samþykkir þú að vera bundin(n) af þessum notkunarskilmálum.
Takmörkun á afnotum:
Efnið á vefnum, hvort sem um er að ræða texta, myndir eða annað efni, er í eigu Mazda og verndað af höfundarréttarlögum. Óheimilt er að nota efnið í heild sinni eða að hluta í atvinnuskyni eða til tekjuöflunar en þó er heimilt að vísa í efni á vefnum. Mazda áskilur sér rétt til að banna tilvísanir sem gerðar eru í atvinnuskyni eða tilvísanir sem til þess eru fallnar að kasta rýrð á Mazda. Athygli er vakin á því að Mazda vörumerkið er skráð vörumerki og er algerlega óheimilt að nota það, dreifa eða afrita nema með skriflegu leyfi eiganda vörumerkisins.
Efni vefsvæðisins:
Vefsvæði Mazda á Íslandi inniheldur upplýsingar um þær vörur sem Mazda á Íslandi býður til sölu hér á landi skv. samkomulagi við birgja hverju sinni. Ekki er tryggt að vörur á þessum vef séu ávallt til á lager og í einstaka tilfellum er eingöngu um að ræða að vara sé seld gegn sérpöntun. Mazda á Íslandi og birgjar fyrirtækisins áskilja sér rétt til að breyta vöruframboði án fyrirvara, breyta verði án fyrirvara og breyta búnaði án fyrirvara. Upplýsingarnar á vefsvæðinu eru ekki tæmandi og koma aldrei í stað þeirra upplýsinga sem söluráðgjafar Mazda á Íslandi veita. Mazda á Íslandi leggur áherslu á að upplýsingar á vefsvæðinu séu réttar en afsalar sér ábyrgð á því ef upplýsingar reynast rangar.
Verð á vöru og þjónustu:
Verð vöru- og þjónustu á vefnum er einungis til viðmiðunar. Upplýsingar um verð, lýsing vöru, staðalbúnaðar og verð aukabúnaðar fela ekki í sér bindandi tilboð af hálfu Mazda á Íslandi. Slíkar upplýsingar kunna að vera úreltar og Mazda á Íslandi beinir því til notanda að sannreyna upplýsingarnar sem fram koma á vefsvæðinu á hverjum tíma hafi hann í hyggju að nýta þær með einhverjum hætti. Verð er ávallt með virðisaukaskatti og getur breyst án fyrirvara og getur verið háð gengi á hverjum tíma en nánar er kveðið á um verðskilmála í kaupsamningi. Verð á rekstrarleigu er miðað við mánaðarlegar greiðslur í 36 mánuði sem geta verið háðar gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra.
Vernd persónuupplýsinga:
Perónuverndaryfirlýsing Brimborgar. Brimborg er umboðsaðli Mazda á Íslandi. Smelltu hér til þess að lesa Persónuverndaryfirlýsingu Brimborgar.
Mazda á Íslandi mun ekki nota þær persónuupplýsingar sem þú veitir fyrirtækinu í gegnum vefsvæðið til að senda þér upplýsingar eða tilboð ef þú óskar ekki eftir því. Mazda á Íslandi mun ekki undir neinum kringumstæðum selja eða láta þriðja aðila í té umræddar upplýsingar.
Tenging við önnur vefsvæði:
Mazda á Íslandi ber ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum sem unnt er að tengjast í gegnum vefsvæði Mazda á Íslandi og eru með öllu ótengdir Mazda á Íslandi. Jafnframt ber Mazda á Íslandi ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum öðrum sem veita aðang að vefsvæði Mazda á Íslandi.
Takmörkun ábyrgðar:
Mazda á Íslandi tekur ekki ábyrgð á fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni af neinu tagi sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna notkunar á vefsvæðinu. Mazda á Íslandi áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála hvenær sem er.
Lögsaga og dómstólar:
Notkunarskilmálarnir eru háðir íslenskum lögum og íslenskir dómstólar hafa einir lögsögu í ágreiningsmálum sem varða notkunarskilmálana og vefsvæðið.