Einstök hönnun á stefnuljósum
Kodo-hönnun Mazda
Kodo-hönnuðu stefnuljósin að aftan sýna glögglega Mazda-stílinn. Þau minna á hjartslátt, þar sem þau blikka fyrst af öllu afli og tónast svo taktfast niður.
Mazda3 Hatchback er fáanlegur í mörgum fallegum og dýnamískum litum. Einstök Takuminuri-tækni okkar býr til áferð sem lætur þér líða eins og bíllinn hafi verið handmálaður af færum handverksmönnum. Þetta undirstrikar kraftmikinn Kodo-hönnunarstíl Mazda, sem færir þér nú úrval af töfrandi og kraftmiklum litum.
Mazda3 Hatchback vekur öll skilningarvitin. Allt frá nautnalegum línum ytra byrðist til vandaðs farþegarýmis. Á veginum munu sportlegir aksturseiginleikar bílsins heilla jafnvel kröfuhörðustu ökumenn.
Mazda3 Hatchback gerir allan daglegan akstur að spennandi upplifun. Þú færð framúrskarandi afköst þökk sé nýjustu Skyactiv vélunum okkar með Mazda M Hybrid tækni, sem og frábærri sparneytni og miklum viðbragðsflýti.
Mazda3 2024 kynnir betri tengingar og upplýsinga- og afþreyingarkerfi. Notaðu uppáhaldsforritin þín með þráðlausu Apple CarPlay® eða þráðlausu Android Auto™. Nú getur framrúðuskjárinn einnig sýnt leiðarvísi þegar þú notar leiðsögukerfi í símanum þínum.
Mazda3 Hatchback 2024 er sannkallað listaverk, hannaður til að vekja gleði og spennu í hvaða aðstæðum sem er. Bíllinn er gott dæmi um glæsilega japanska hönnun með aðlaðandi sveigjum sem endurspegla fallegt umhverfi.
Prime-Line útfærslan af Mazda3 Hatchback setur markið hátt með aðlaðandi staðalbúnaði, eins og fjarglægðarstillanlegum hraðastilli, framrúðuskjá og bakkmyndavél.
Exclusive-Line útfærslan er sérlega glæsileg og þægileg með 18" álfelgum, þriggja þrepa hita í framsætum, loftkælingu á tveimur svæðum, lyklalausu aðgengi og hita undir rúðuþurrkum.
Homura útfærslan af Mazda3 Hatchback er með auðþekkjanlegt útlit. 18" svartar álfelgur og svart sætisáklæði með rauðum saumum gera bílinn einstaklega flottan en hann er einnig ríkulega búinn, með lyklalaust aðgengi og margt fleira.
Kodo-hönnuðu stefnuljósin að aftan sýna glögglega Mazda-stílinn. Þau minna á hjartslátt, þar sem þau blikka fyrst af öllu afli og tónast svo taktfast niður.
Handverksmeistarar okkar hafa búið til innréttingu sem tjáir fullkomlega japanska fagurfræði og handverk í samræmi við "meira er minna" (less is more) hugmyndafræðina. Það er virkilega ánægjulegt fyrir bæði ökumann og farþega að vera í farþegarými Mazda3 Hatchback, því þar er einstök blanda af þægindum og glæsileika.
Ökuferðin verður spennandi þegar þú kveikir á tónlistinni og hlustar á hana í frábærum Bose-gæðum og 12 hátölurum.
Skoðaðu verðlistann eða hafðu samband. Þú getur svo bókað reynsluakstur bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Sjáðu laus eintök af Mazda3 Hatchback.
Viltu prófa Mazda3 Hatchback? Hafðu samband eða líttu við hjá okkur
Í verðlistanum finnurðu nánari upplýsingar um bílinn og aukabúnað.
Sendu okkur skilaboð og við höfum samband.