Laus eintök í vefsýningarsal

Meira en bara rafbíll

Nýr Mazda CX‑6e er fágaður og sportlegur bíll með samræmda hönnun og vönduðum smáatriðum. Í innanrýminu einfaldar háþróuð og vel útfærð tækni daglegt líf og eykur þægindi, á meðan yfirgripsmikil öryggiskerfi stuðla að öruggari akstri. Bíllinn býður upp á allt að 484 km drægni¹ og styður hraðhleðslu þegar hlaða þarf hratt og skilvirkt.

HUGREKKI TIL AÐ FARA ÞÍNAR EIGIN LEIÐIR

Glænýr Mazda CX‑6e leiðir „Kodo: Soul of Motion“ hönnunina í nýja átt. Kraftmikil yfirbygging og flæðandi línur skapa jafnvægi milli nútímalegrar nærveru og fágaðs stíls. Hönnunin er útfærð til að fanga ljósið og draga fram form bílsins, sem sést greinilega í nýja litnum okkar, Nightfall Violet.

TÆKNI SEM VINNUR MEÐ ÞÉR

Upplifðu nýtt og snjallt innanrými þar sem notagildi og stíll mætast. Breiður, tvískiptur 26" snertiskjár er í rýminu, auk þess sem stór framrúðuskjár eykur þægindi í akstri. Raddstýring og hreyfiskipanir gera notkun einfaldari, og hljóðkerfi með 23 hátölurum tryggir framúrskarandi hljómgæði fyrir alla farþega.

RÝMI SEM SAMEINAR ÖKUMANN OG BÍL

Mazda CX-6e er hannaður til að skapa nána tengingu milli ökumanns og bíls, tilfinningu sem við köllum Jinba Ittai. Þú nýur þægilegrar og öruggrar akstursupplifunar með jöfnu, hljóðlátu afli, snörpu viðbragði og allt að 484 km drægni.

GLÆNÝR MAZDA CX-6e

Finndu þinn fullkomna CX-6e

Aðlagaðu Mazda CX-6e að þínum stíl með flottum litum.

Vandlega úthugsuð innrétting

Innrétting nýja Mazda CX-6e gerir daglegt líf einfaldara með þægindum, rými og fjölhæfni. Gott axlar- og fótarými í öllum sætum tryggir afslappaðan akstur á meðan slitsterk efni og sveigjanlegt farangursrými ráða vel við hvert einasta ævintýri. Stór miðskjár og mild lýsing skapa rými sem er bæði fágað og afslappandi.

SVEIGJANLEGT FARANGURSRÝMI

Með 468 lítra farangursrými ræður Mazda CX-6e auðveldlega við verkefni dagsins. Aftursætin má fella alveg niður til að gera allt að 1434 lítra rými fyrir stærri hluti. Þar að auki bætist við hagnýtt 80 lítra geymslurými að framan, tilvalið fyrir hleðslusnúru eða smærri muni, sem hjálpar til við að halda góðu skipulagi í aðalrýminu.

DRÁTTARGETA

Mazda CX-6e hefur dráttargetu upp að 1500 kílóum og dregur jafnt og örugglega, hvort sem um er að ræða hjólhýsi eða bát.

PANORAMAÞAK MEÐ RAFDRIFINNI SÓLHLÍF

Panoramaþakið er úr einangruðu gleri sem hleypir náttúrulegu ljósi inn í innanrýmið. Rafdrifin sólhlíf fylgir staðalbúnaði. Löng þaklína gefur bílnum opið og rúmgott yfirbragð án þess að draga úr þægindum farþega.

RÚMGÓÐ SÆTI FYRIR ALLA

Nýr Mazda CX-6e býður upp á þægileg sæti fyrir alla. Jafnvel þegar hávaxin manneskja situr í framsæti er nægt fótarými fyrir aftursætisfarþega. Í Takumi Plus útfærslu geta þau aftan í bíl stjórnað sólhlíf, loftstillingu, hita og loftun í sætum með sérstökum snertiskjá.

ÓBEIN LÝSING

Þegar rökkvar myndast afslöppuð stemning með mjúkri, óbeinni lýsingu sem lýsir mikilvæga fleti án þess að valda glampa. Hægt er að velja úr allt að 256 litum til að stilla stemninguna að eigin smekk og skapa notalega akstursupplifun.

TAKUMI

Ný sýn á kunnuglega hönnun

Hefðbundnir hliðarspeglar

Innrétting í svörtu eða beige Maztex⁵ áklæði

19" eða 21" álfelgur

TAKUMI PLUS

Fullbúin tæknipakki og þægindi í hávegum höfð

Stafrænir hliðarspeglar og stafrænn baksýnisspegill

Sætisáklæði úr dökkfjólubláu Maztex⁵ með hvítum áherslum og höfuðpúðum

21" álfelgur

Hiti og loftræsting í aftursætum

TÆKNI OG TENGIMÖGULEIKAR

Mazda CX-6e er hannaður með áherslu á ökumanninn. Hann sameinar snjalla tækni og hagnýtar lausnir í innanrými sem gerir notkunina þægilega og örugga.

Bíllinn er með 26 tommu snertiskjá og framrúðuskjá sem veitir skýra yfirsýn yfir helstu upplýsingar. Þar að auki er boðið upp á raddstýringu og handahreyfingar, þráðlausa hleðslu og hljóðkerfi sem umlykur farþegarýmið. Allt er þetta hannað til að skapa tengt og notendavænt umhverfi fyrir alla farþega.

BREIÐUR 26" SNERTISKJÁR
BREIÐUR 26" SNERTISKJÁR
STAFRÆNIR EÐA HEFÐBUNDNIR SPEGLAR?
HÁGÆÐA HLJÓÐKERFI MEÐ 23 HÁTÖLURUM
NOTAÐU SÍMANN SEM LYKIL
BREIÐUR 26" SNERTISKJÁR
STAFRÆNIR EÐA HEFÐBUNDNIR SPEGLAR?
HÁGÆÐA HLJÓÐKERFI MEÐ 23 HÁTÖLURUM
NOTAÐU SÍMANN SEM LYKIL

BREIÐUR 26" SNERTISKJÁR

Innanrými Mazda CX-6e er búið 26 tommu snertiskjá sem hægt er að skipta í tvo aðskilda hluta. Ökumaðurinn getur fylgst með leiðsögn vinstra megin á skjánum, á meðan farþeginn notar hægri hliðina.

Skjárinn er í 5K upplausn, er með litadýpt í kvikmyndagæðum og glampafrítt yfirborð. Í samspili við sjónlínuskjáinn leysir hann hefðbundið mælaborð af hólmi og skapar hreint og nútímalegt útlit.

STAFRÆNIR EÐA HEFÐBUNDNIR SPEGLAR?

Mazda CX-6e Takumi er búinn hefðbundnum hliðarspeglum og baksýnisspegli, á meðan Takumi Plus er með stafrænum hliðarspeglum og stafrænum baksýnisspegli.

Stafrænir speglar veita víðara sjónsvið, betri yfirsýn í myrkri og skýrara útsýni þegar bakkað er. Varnarhúðuð hliðarmyndavélin gefur bílnum nútímalegt yfirbragð og dregur úr loftmótstöðu.

Stafræni baksýnisspegillinn tryggir fullt útsýni, jafnvel þegar farangursrýmið er fullt upp í topp.

HÁGÆÐA HLJÓÐKERFI MEÐ 23 HÁTÖLURUM

Öflugt 1280 w hljóðkerfi skilar skýrum og jöfnum hljómi um allt farþegarýmið með 23 hátölurum.

Hátalarar í höfuðpúðum framsæta eru með Bluetooth® og gera bæði ökumanni og farþega kleift að hlusta á sína tónlist án þess að trufla þau sem sitja í aftursætum.

Auk þess er 20w ytri hátalari til að skapa stemningu utan við bílinn.

NOTAÐU SÍMANN SEM LYKIL

Með CX-6e-appinu og Bluetooth®-lykli getur síminn virkað sem lykill, bæði til að opna og ræsa bílinn, án þess að nota hefðbundinn lykil.

Öruggum stafrænum aðgangi er hægt að deila með allt að þremur öðrum notendum. Þú stillir hvenær aðgangurinn virkjast og rennur út, og getur afturkallað hann hvenær sem er.

Fullkomið fyrir fjölskyldur, samstarfsfólk eða þegar bíllinn er notaður sameiginlega.

AKSTURSUPPLIFUN

Upplifðu öruggan og þægilegan rafmagnsakstur. Nýr Mazda CX-6e sameinar hljóðláta virkni við nákvæma stýringu, jafna hröðun og örugga hemlunarhegðun, sem skilar náttúrulegri og traustri akstursupplifun. Sætisstaða ökumanns og skipulag stjórntækja styðja við afslappaða líkamsstöðu og tryggja nánari tengingu við bílinn.

Nánari upplýsingar