Glænýr Mazda CX-6e frumsýndur á bílasýningunni í Brussel

09.01.2026

Rafmagnsakstur í sinni glæsilegustu mynd

Mazda hefur nú afhjúpað glænýjan Mazda CX-6e, rúmgóðan rafknúinn jeppling (SUV) sem sameinar áberandi hönnun, sterka frammistöðu og háþróaða tækni. Kynningin fór fram við opnun bílasýningarinnar í Brussel, sem stendur yfir 9.–18. janúar 2026.

Þegar Mazda CX-6e kemur á markað sumarið 2026 tekur Mazda enn eitt stórt skref inn í rafvædda framtíð, án þess að gefa eftir í akstursupplifuninni sem Mazda leggur áherslu á, Jinba Ittai, þar sem bíll og ökumaður mynda eina heild.

Mazda CX-6e er búinn 78 kWh LFP-drifrafhlöðu, afturhjóladrifinn og skilar 258 hestöflum. Þetta tryggir lipra og örugga frammistöðu, ásamt allt að 484 km drægni skv. WLTP. Hámarks DC-hraðhleðsla er 195 kW, sem gerir kleift að hlaða rafhlöðuna úr 10% í 80% á allt frá 24 mínútum (háð aðstæðum). Innbyggð hleðslustýring styður 11 kW 3ja fasa AC-hleðslu.

Með Mazda CX-6e þróar Mazda hönnunartungumálið „Kodo – Soul of Motion“ áfram inn í nýtt tímabil rafknúinnar akstursupplifunar. Þemað er innihaldsrík framtíðarhugsun, þar sem áhersla er lögð á jafnvægi milli nýrrar tækni, hagnýtrar notkunar og listrænnar fágunar.

Hjólhafið er 2.902 mm og rýmisnýting tryggir gott pláss fyrir alla farþega. Farangursrýmið er reglulegt í lögun og rúmar 468 lítra, en það má stækka í 1.434 lítra með aftursæti fellt niður. Að auki er farangursrými að framan sem rúmar 80 lítra.

Innréttingin er innblásin af japanska hugtakinu „ma“, sem lýsir fegurð og jafnvægi í opnu rými. Stýrikerfið er byggt upp í kringum 26 tommu snertiskjá með 5K upplausn, sem hægt er að skipta upp þannig að bæði ökumaður og farþegi í framsæti geti nýtt hann á þægilegan og einfaldan hátt. Skjánum til viðbótar er bíllinn með stóran framrúðuskjá (Head-up Display) sem birtir helstu akstursupplýsingar beint í sjónlínu ökumanns.

Auk þráðlausrar Apple CarPlay og Android Auto er Mazda CX-6e með sérhæft app sem býður upp á fjölbreytta möguleika, þar á meðal Bluetooth-lykladeilingu, stýringu á hleðslu og möguleika á að kæla eða hita farþegarýmið úr fjarlægð. Öryggisbúnaður er umfangsmikill og felur meðal annars í sér níu loftpúða, auk fjölda öryggiskerfa.

Innréttingin er í vegan valkosti við leður, sem Mazda kallar Maztex, og fæst í þremur útfærslum: Warm Beige eða svart í CX-6e Takumi, eða tvílitt Amethyst/hvítt í CX-6e Takumi Plus.