Mazda CX-30 afhjúpaður!
Mazda afhjúpaði á Bílasýningunni í Genf nýjan jeppa (SUV) - Mazda CX-30.
Stærðin á Mazda CX-30 er mjög hentug eða mitt á milli vinsælu jeppana tveggja, Mazda CX-3 og Mazda CX-5. Gera má ráð fyrir að Mazda CX-30 verði kynntur á Íslandi í lok ársins 2019.
Einstaklega fallegur Mazda CX-30 og ber af í hönnun!
Innra rýmið sérstaklega hannað utan um ökumanninn.
Innra rými Mazda CX-30 er einstaklega hljóðlátt og hannað til að lágmarka óþarfa veghljóð en leyfa samt ákveðin hljóð til að halda í náttúrulega aksturskynjun. Öll stjórntæki í Mazda CX-30 eru staðsett rétt innan seilingar og gefa þér tilfinningu fyrir að ökutækið hafi verið hannað fyrir þig. Ný endurhönnuð sæti sem leggjast fullkomlega að hryggnum.
Nýr Mazda CX-30 kemur með enn kraftmeiri hönnun sem líkist nýja Mazda3 og er upphaf af nýju hönnunarþema Mazda - Kodo Soul of Motion. Mazda CX-30 er hannaður með hegðun og hreyfingu mannsins að leiðarljósi til að þú upplifir afburða akstur. Það er markmið Mazda að þú upplifir áreynslulausan akstur og einstaka akstursupplifun.
Nýjasta SKYACTIV tækni Mazda ásamt 24V Mild Hybrid kerfinu skilar framúrskarandi afköstum og eldsneytisnýtingu án málamiðlana. SKYACTIV - G vélin skilar lágum eyðslutölum fyrir bíl í þessum stærðarflokki þökk sé SKYACTIV spartækni Mazda. SKYACTIV vél Mazda er hönnuð til að skila þér krafti, framúrskarandi afköstum og stjórnun. SKYACTIV-G 2,0 lítra bensínvélin býður upp á hæsta þjöppunarhlutfall meðal bensínvéla eða 14:1 sem leiðir til minni losunar og betri eldsneytisnýtingu. Nýjasta tækniundur Mazda, SKYACTIV-X vélin verður fáanleg í CX-30, um er að ræða byltingarkennda vél. Hún styðst við brunaferli – þjöppukveikingu (compression ignition) sem bílaiðnaðurinn er búinn að reyna að ná tökum á undanfarna tvo áratugi.
Við viljum að Mazda auðgi líf eigenda sinna og að Mazda verði partur af ferðalagi lífsins. Nýr Mazda CX-30 er partur af nýju upphafi sem endurspeglar ákvörðun okkar um að gera bílinn enn vandaðri, enn meiri lúxus.
Nýja Mazda CX-30 verður til sýnis á Bílasýningunni í Genf frá 5 til 17. mars 2019.
Við hlökkum svo sannarlega til að fá Mazda CX-3 til Íslands!