Mazda CX-6e frumsýndur laugardaginn 26. september
Mazda CX-6e frumsýndur laugardaginn 26. september
Nýr Mazda CX-6e er kominn til landsins og við frumsýnum hann laugardaginn 26. september frá klukkan 12 til 16, bæði í Reykjavík og á Akureyri. Söluráðgjafar taka á móti gestum í kaffi og hægt er að fara í reynsluakstur á staðnum.
Mazda CX-6e færir hönnunarheimspeki Mazda, KODO Soul of Motion, inn í rafmagnaða framtíð. Rúmgóður sportjeppi með skýrar línur, allt að 484 km drægni og hraðhleðslu úr 10 í 80 prósent á aðeins 24 mínútum.
Verð og útfærslur
Mazda CX-6e fæst í tveimur útfærslum, Takumi og Takumi Plus, báðum ríkulega búnum.
- Takumi á 19 tommu felgum: 6.890.000 kr. og 6.390.000 kr. með rafbílastyrk
- Takumi á 21 tommu felgum: 7.090.000 kr. og 6.590.000 kr. með rafbílastyrk
- Takumi Plus: 7.490.000 kr. og 6.990.000 kr. með rafbílastyrk
Kaupandi greiðir fullt verð en á rétt á 500.000 kr. styrk frá Orkusjóði sem sótt er um á island.is. Mazda CX-6e fylgir sex ára verksmiðjuábyrgð og átta ára rafhlöðuábyrgð.
Tækni sem vinnur með þér
Samspil ökumanns og bíls er einfalt og eðlilegt í Mazda CX-6e. Raddstýring nær yfir fjölda aðgerða, allt frá miðstöð til leiðsögukerfis, og 26,45 tommu snertiskjár heldur upplýsingum innan seilingar án þess að trufla aksturinn. Snjallsímalykill gerir símann að lykli að bílnum og með Mazda-appinu, þráðlausu Apple CarPlay og Android Auto helst tengingin hvar sem er.
Hljóðkerfi með 23 hátölurum, panorama glerþak með rafdrifinni gardínu, loftkæld framsæti og stillanleg stemningslýsing með 256 litum gera hverja ferð þægilega, hvort sem hún er stutt eða löng.
Öryggi í allar áttir
Fullkomin öryggis- og aðstoðarkerfi fylgjast með umhverfi bílsins með ratsjám og myndavélum og hjálpa til við að koma í veg fyrir árekstra. Meðal staðalbúnaðar eru árekstrarviðvörun að framan og aftan, snjallhemlunarbúnaður, blindpunktsaðvörun, veglínuskynjun með hjálparátaki, 360 gráðu myndavélakerfi og níu öryggisloftpúðar.
Drægni, hleðsla og rými
Mazda CX-6e er afturhjóladrifinn með 78 kWh LFP drifrafhlöðu og 258 hestöfl. Drægni er allt að 484 km samkvæmt WLTP á 19 tommu felgum og 468 km á 21 tommu felgum. Hraðhleðsla úr 10 í 80 prósent tekur 24 mínútur og innbyggð 11 kW hleðslustýring hleður bílinn að fullu á 8,5 klukkustundum heima við.
Farangursrýmið er 468 lítrar og stækkar í 1.434 lítra með niðurfelld aftursæti. Að auki er 80 lítra geymsla undir húddinu fyrir hleðslusnúrur og annan farangur.
Komdu og upplifðu
Við hvetjum alla til að líta við um helgina og kynnast Mazda CX-6e af eigin raun.
Laugardaginn 26. september klukkan 12 til 16
- Reykjavík: Brimborg, Bíldshöfða 8
- Akureyri: Brimborg, Tryggvabraut 5
