Nýr Mazda CX-5 er frumsýndur 18. apríl

13.04.2026

Athugið: Fréttin birtist 13. apríl 2026. Upplýsingar í henni, svo sem um verð, búnað og framboð, eiga mögulega ekki lengur við. Tilboðin sem nefnd eru í fréttinni eru ekki lengur í gildi. Söluráðgjafar okkar veita upplýsingar um núgildandi kjör.

Mazda á Íslandi býður þér á frumsýningu á glænýjum Mazda CX-5 laugardaginn 18. apríl frá kl. 12 til 16 hjá Brimborg í Reykjavík og á Akureyri.

 

Mazda CX-5 er einn ástsælasti bíll Mazda og hefur verið söluhæsti bíll merkisins á heimsvísu um árabil. Glæný kynslóð byggir á sterkri arfleifð en tekur skref fram á við með fágaðri hönnun, meira rými og enn betri akstursupplifun.

 

Hönnun og akstursánægja í forgrunni

Glænýr CX-5 er hannaður í anda Kodo hönnunarlínunnar þar sem einfaldleiki og kraftur mætast. Ytra útlit er straumlínulagað og kraftmikið á meðan innanrými er rúmbetra og þægilegra.

 

Akstursupplifun byggir áfram á Jinba Ittai hugmyndafræðinni þar sem samspil ökumanns og bíls er í forgrunni. Fjórhjóladrif Mazda, i-Activ AWD, tryggir stöðugleika og öryggi við fjölbreyttar aðstæður og eykur öryggistilfinningu í íslenskum aðstæðum.

 

Glænýr CX-5 sameinar einnig akstursánægju og notagildi með góðri dráttargetu sem hentar vel fyrir kerrur, hjól eða annan búnað. Með allt að 2.000 kg dráttargetu er hann vel í stakk búinn fyrir virkan lífsstíl.

 

Meira rými og aukið notagildi

Ný kynslóð CX-5 býður upp á meira innanrými, betra aðgengi og aukið notagildi. Uppfært upplýsinga- og afþreyingarkerfi með stærri skjám og bættri tengingu gerir notkun einfaldari og þægilegri.

 

Tilboð á öðrum Mazda bílum á frumsýningardegi

Í tilefni frumsýningarinnar verða mjög spennandi tilboð á öðrum Mazda bílum. Þú getur skoðað úrval nýrra bíla hér . 

 

Velkomin á frumsýningu

Frumsýningin fer fram laugardaginn 18. apríl frá kl. 12 til 16:

  • Mazda á Íslandi - Reykjavík, Bíldshöfði 8
  • Mazda á Íslandi - Akureyri, Tryggvabraut 5

Öll eru hjartanlega velkomin að skoða glænýjan Mazda CX-5 og upplifa hönnun, rými og akstursánægju sem einkenna Mazda.

 

Skoðaðu allt um Mazda CX-5 hér.