Sniðugi sendlabíllinn Mazda MX-30

15.05.2024
content image

Nú hefur sjaldan farið eins vel um sendilinn því Mazda MX-30 rafbíllinn er fáanlegur á frábæru verði sem vsk. breyttur sendibíll.

Verð aðeins 3.490.000 kr. án vsk, með sendibílabreytingu og rafbílastyrk.

Hvað þýðir þetta fyrir þinn rekstur?

Reikningsdæmið er mjög einfalt. Með tilkomu 900.000 kr. rafbílastyrksins frá ríkinu fæst Mazda MX-30 á einstaklega hagstæðu verði fyrir fyrirtæki. Eftir vsk. breytingu í sendibíl þar sem aftursætin eru tekin út og aðrar breytingar gerðar til að standast kröfur um skráningu sendibíla, fæst bíllinn á aðeins 3.490.000 kr. án vsk.

Fullt verð á bílnum með vsk. og breytingunni er 5.610.000 kr.

Mazda MX-30 rafbíll er ótrúlega sniðugur sendlabíll því það er gott pláss í honum eftir breytinguna og hann er virkilega þægilegur í akstri. Það fer einstaklega vel um sendilinn í bílstjórasætinu, enda er bíllinn margrómaður fyrir þægindi og lipurð í akstri.

Bíllinn er tilvalinn fyrir fólk sem er að skutlast um bæinn með litlar sendingar og þess ber að geta að hann er mjög snöggur að hlaða í hraðhleðslustöð.

Við erum með sýningarbíl í salnum okkar á Bíldshöfða 8, komdu og skoðaðu!

Lestu meira um Mazda MX-30 hér