STÓRSÝNING MAZDA LAUGARDAGINN 15.JÚNÍ!

11.06.2019
content image

Við blásum til stórsýningar Mazda laugardaginn 15. júní í Reykjavík.
Á sýningunni frumsýnum við geggjaðan Mazda3 SEDAN og til viðbótar verða Mazda2 , Mazda CX-5 og Mazda6 sedan á einstökum sýningartilboðum.

KOMDU OG REYNSLUAKTU - OPIÐ FRÁ 12-16!

FRUMSÝNING MAZDA3 SEDAN OG KYNNING Á NÝRRI M-HYBRID TÆKNI

Með nýrri hönnun Mazda3 SEDAN færir japanski bílaframleiðandinn sig inn á lúxusbílamarkaðinn með gríðarlega vel búnum bíl, með nýrri M-Hybrid vélartækni og á frábæru verði. Mazda hefur notið mikilla vinsælda á Íslandi í áratugi sem skilar sér í frábærri endursölu. Mazda eigendur elska að keyra og nú er komið að þér að upplifa tilfinnninguna að keyra nýjan Mazda.

Brimborg frumsýnir Mazda3 SEDAN með nýrri M-Hybrid tækni sem minnkar eldsneytisnotkun, dregur úr losun CO2 og eykur afl. Nýr Mazda3 SEDAN er gríðarlega vel búinn. Komdu og prófaðu!
Verð frá: 3.490.000 kr.

NÝ KYNSLÓÐ MAZDA3 SEDAN ER VEISLA FYRIR SKYNFÆRIN - LÚXUSUPPLIFUN

Nú hefst nýr kafli í sögu Mazda.  Nýr Mazda3 er hannaður með hegðun og hreyfingu mannsins að leiðarljósi svo þú upplifir afburða akstur. Með SkyActiv - bíltækninni bregst Mazda3 við öllum fyrirætlunum þínum með fyrirsjáanlegum viðbrögðum. Innra rýmið hefur verið hannað með einstökum gæðaefnum og með notandann í fyrirrúmi. Þú finnur strax í fyrsta akstri hvernig dregið hefur verið úr óþarfa hávaða og titringi til að skapa afburða akstursupplifun.

Hönnun Mazda3 er einstök og dásömuð af sérfræðingum um allan heim. Mazda3 er sannkallað listaverk að utan sem innan – sannkölluð veisla fyrir skynfærin.

KOMDU OG REYNSLUAKTU - OPIÐ FRÁ 12-16!